Guðrún Valdi­mars­dótt­ir hef­ur tekið við starfi fram­kvæmda­stjóra fjár­mála­sviðs WOW air en hún var áður aðstoðarmaður Skúla Mo­gensen for­stjóra WOW. Hún hóf störf hjá Wow í byrjun síðasta árs.

Guðrún var áður fjár­mála­stjóri Viðskiptaráðs Íslands frá 2010 til 2012.

Guðrún er viðskipta­fræðing­ur MBA og M.Sc. í fjár­mál­um fyr­ir­tækja frá Há­skól­an­um í Reykja­vík. Eig­inmaður Guðrún­ar er Hörður Fel­ix Harðar­son lögmaður hjá Mörkinni lögmannsstofu.