Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis, var kjörin stjórnarformaður Auðar á aðalfundi fyrirtækisins fyrir skömmu.

Vilhjálmur Þorsteinsson fjárfestir gegndi áður stöðu stjórnarformanns en lætur af þeirri stöðu nú. Hann mun þó sitja áfram í stjórninni.

Elín Jónsdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi forstjóri Bankasýslu ríkisins, verður einnig áfram í stjórn fyrirtækisins.