Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað Ástu Björg Pálmadóttur í stjórn Íbúðalánasjóðs í stað Ingibjargar Ólafar Vilhjálmsdóttur fyrrum formanns stjórnar sem baðst lausnar úr stjórn í mars s.l.  Ásta Björg hefur viðtæka reynslu af sveitarstjórnunarmálum og stjórnun.

Ráðherra hefur jafnframt skipað Hauk Ingibergsson sem formann stjórnar Íbúðalánasjóðs, en Haukur hefur verið í stjórn sjóðsins síðastliðin 5 ár. Haukur mun taka við af Sigurbirni Ingimundarsyni, framkvæmdastjóra þingflokks Sjálfstæðisflokksins.