Iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur skipað Auði Finnbogadóttur sem formann stjórnar Samkeppniseftirlitins í stað Kristínar Haraldsdóttur, en skipunin gildir frá 1. desember 2015 til 26. ágúst 2017. Fram kemur í tilkynningu um skipunina að Kristín hafi beðist lausnar frá stjórnarsetu.

Auður er viðskiptafræðingur frá University of Colorado í Bandaríkjunum og er með MBA próf frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur einnig fjölbreytta reynslu úr atvinnulífinu og hefur setið í stjórn fjölda fyrirtækja.

Ráðherra hefur einnig skipað Eyvind G. Gunnarsson í aðalstjórn Samkeppniseftirlitins, en hann hefur setið í varastjórn eftirlitsins. Ingvi Már Pálsson, skrifstofustjóri og Jóhanna Kartín Magnúsdóttir hafa einnig verið skipuð sem varamenn í stjórn eftirlitsins.