Guðlaug Kristjánsdóttir sjúkraþjálfari hefur verið kjörin formaður BHM en Halldóra Friðjónsdóttir gaf ekki kost á sér áfram. Páll Halldórsson, frá Félagi íslenskra náttúrufræðinga, hefur verið kjörinn varaformaður.
Aðrir í aðalstjórn BHM eru: Ársæll Baldursson, Kjarafélagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Bragi Skúlason, Útgarði. Jörundur Guðmundsson, Félagi háskólakennara. Salóme Þórisdóttir, Þroskaþjálfafélagi Íslands. Vilborg Oddsdóttir, Félagsráðgjafafélagi Íslands.
Varamenn eru : Margrét Gunnarsdóttir, Félagi íslenskra félagsvísindamanna og Bára Hildur Jóhannsdóttir, Ljósmæðrafélag Íslands.