Kristalina Georgieva var í dag formlega tilnefnd af Evrópusambandinu til þess að veita Alþjóðagjaldeyrissjóðnum forystu. Kristalina Georgieva starfar nú sem framkvæmdastjóri Alþjóðabankans.
Hún er 65 ára gömul og doktor í hagfræði frá hagfræðiháskólanum í Sofíu í Búlgaríu. Hún hefur auk þess stundað nám og rannsóknir við London School of Economics og MIT.
Frétt Financial Times um málið.