Jóhanna á Bergi hefur verið ráðin forstjóri Faroe Ship frá og með 22. maí næstkomandi, segir í tilkynningu. Jóhanna tekur við af Árna Joensen sem fer á eftirlaun eftir tæplega 30 ára starf sem forstjóri fyrirtækisins.

Jóhanna á Bergi útskrifaðist frá Danish school of Export and Marketing árið 1994 og lauk mastersnámi í stjórnun frá Robert Gordon University í Skotlandi 2004. Jóhanna er í dag sölu- og marksaðsstjóri hjá P/F JFK í Færeyjum og hefur áður starfað sem sölustjóri hjá P/F kósin Seafood og sölustjóri hjá Faroe Seafood í Frakklandi. Hún er stjórnarformaður verslunarskóla Færeyja auk þess að eiga sæti í stjórnun nokkurra færeyskra fyrirtækja.

Faroe Ship er leiðandi flutningsfyrirtæki í Færeyjum. Fyrirtækið er dótturfélag Eimskips sem hefur undanfarið aukið verulega umsvif sín í Færeyjum með kaupum á landflutningafyrirtækjunum Heri Thomsen og Farmaleiðum. Jóhanna á Bergi mun leiða sameiningu og samþættingu á starfsemi Eimskips í Færeyjum, með það að markmiði að auka og bæta núverandi þjónustu í flutningum og vörustjórnun.

Faroe Ship mun áfram njóta starfskrafta og reynslu Árna Joensen þar sem hann mun verða stjórnarformaður Faroe Ship.