Sigurhjörtur Sigfússon hefur verið ráðinn nýr forstjóri Mannvits en hann hefur gegnt starfi fjármálastjóra fyrirtækisins frá árinu 2012. Dr. Eyjólfur Árni Rafnsson, sem gegnt hefur starfi forstjóra Mannvits síðastliðin 12 ár mun að eigin ósk láta af störfum sem forstjóri um næstu áramót. Hann mun þó áfram starfa fyrir félagið á sviði verkefnastjórnunar og markaðs- og kynningarmála.

Sigurhjörtur er löggiltur endurskoðandi og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Áður en hann var ráðinn til Mannvits var hann forstöðumaður áætlana og greininga hjá Skiptum.