Hermann Björnsson, framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka, hefur verið ráðinn forstjóri Sjóvár. Hermann lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1990. Að loknu námi hóf hann störf hjá lögfræðideild Íslandsbanka og starfaði þar til 1994 er hann tók við starfi forstöðumanns rekstrardeildar Íslandsbanka. Árið 1999 varð Hermann forstöðumaður útibúasviðs Íslandsbanka og síðar aðstoðarframkvæmdastjóri þess sviðs. Hann hóf stjörf hjá Kaupþingi sem aðstoðarframkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs árið 2006 og hefur verið framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Arion banka frá árinu 2009.

Hermann hefur á síðustu árum gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum. Hann hefur m.a. setið í stjórnum Fjölgreiðslumiðlunar, Kreditkorta, Lífeyrissjóðs bankamanna og líftryggingarfélagsins Okkar lífs. Hermann er 48 ára og kvæntur Eiríku Guðrúnu Ásgrímsdóttur, starfsmannastjóra hjá Vinnumálastofnun.

Hermann Björnsson: „Ég er mjög spenntur fyrir þessu nýja starfi. Sjóvá á sér langa sögu í okkar samfélagi, sögu sem byggir á traustum grunni, góðum viðskiptasamböndum og reynslumiklu starfsfólki. Verkefnið verður að efla félagið enn frekar til framtíðar.“