Jørgen Holme var ráðinn nýr forstjóri Atlantic Airways á dögunum. Hann mun gegna stöðunni tímabundið en Magni Arge sagði upp störfum nýlega..

Á vef Atlantic Airways segir að Arge og stjórn flugfélagsins hafi komist að sameiginlegri niðurstöðu um starfslok hans vegna þess að stjórnin hafi viljað taka nýja stefnu með fyrirtækið.

Magni Arge hefur verið forstjóri fyrirtækisins i 18 ár. Hann verður áfram starfandi ráðgjafi fyrirtækisins.