Matthias Müller hefur verið ráðinn forstjóri Volkswagen, en í gær voru sagðar fréttir af því að hann væri líklegur arftaki Martin Winterkorn, sem sagði af sér í kjölfar þess að upp komst um að fyrirtækið hefði svindlað á útblástursprófum í Bandaríkjunum.
Müller hafði áður verið forstjóri Porsche frá árinu 2010. Að loknu grunnnámi árið 1977 vann hann í verksmiðju Audi þar til hann hóf nám í tölvuverkfræði í háskólanum í Munchen. Að útskrift lokinni sneri hann aftur til Audi árið 1984 og vann á upplýsingatæknisviði fyrirtækisins. Árið 1993 flutti hann sig í hönnunardeild Audi og var árið 1995 yfir allri verkefnastjórn hjá fyrirtækinu.
Árið 2002 tók Winterkorn við stjórnartaumunum í Audi og var Müller þá settur yfir bæði Audi og Lamborghini bílalínurnar. Eftir að Winterkorn varð forstjóri Volkswagen setti hann Müller yfir alla vöruþróun í fyrirtækinu. Eins og áður segir varð Müller forstjóri Porsche árið 2010 og hefur gegnt því starfi þar til nú.