Halldór Karl Högnason hefur verið ráðinn forstöðumaður fjárstýringar hjá MP banka. Halldór Karl hefur starfað hjá MP banka frá ársbyrjun 2010 sem sérfræðingur í eigin viðskiptum. Halldór starfaði áður hjá afleiðuviðskiptum Kaupþings og síðar fjárstýringu Arion banka. Halldór Karl er með MSc í fjármálastærðfræði frá City University í London og CSc í rafmagnsverkfræði frá Háskóla Íslands.