Davíð Ingi Jónsson, hdl. hefur verið ráðinn forstöðumaður lögfræðideildar Eimskips. Lögfræðideild félagsins fellur undir fjármála- og stjórnunarsvið og sinnir fjölþættum lögfræðilegum verkefnum tengdum starfsemi þess.

Davíð tekur við af Heiðrúnu Jónsdóttur sem hætti fyrir mánuði.

Davíð hefur starfað sem lögfræðingur hjá Eimskip síðan í mars 2009, en áður starfaði hann á lögfræði- og regluvörslusviði Glitnis og Íslandsbanka.

Davíð er lögfræðingur frá Háskólanum í Reykjavík og hefur réttindi héraðsdómslögmanns.