Ástvaldur Jóhannsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Alþjóðalausna hjá Valitor.

Ástvaldur Jóhannsson, Valitor
Ástvaldur Jóhannsson, Valitor
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Ástvaldur hefur víðtæka alþjóðlega stjórnunarreynslu eftir störf sín erlendis og á aðalskrifstofu Össurar hf. undanfarinn áratug. Þar áður átti hann sæti í framkvæmdastjórn Nýherja hf. og Pennans ehf.

Ástvaldur er með framhaldsmenntun frá Heriot-Watt University í Edinborg í Skotlandi og meistaragráðu í rekstrarhagfræði frá HÍ.