Nýr framkvæmdastjóri Aalborg Portland á Íslandi

Magnús Eyjólfsson  hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sölu- og dreifingarstöðvar Aalborg Portland á Íslandi. Síðastliðin 6 ár hefur hann starfað sem sölu- og markaðsstjóri hjá Ísfelli ehf. ásamt því að sitja í framkvæmdaráði félagsins.  Hjá Ísfelli leiddi hann vöxt í sölu- og markaðsstarfi sem miðaði að því að stækka vöruflóru og viðskiptavinahóp félagsins.  Áður starfaði Magnús sem fjármálastjóri hjá Gagnavörslunni og framkvæmdastjóri hjá Merkingu.

Magnús verður ábyrgur fyrir daglegri stjórnun og rekstri Aalborg Portland á Íslandi og stuðla að frekari vexti fyrirtækisins á íslenska markaðnum.

Magnús er með meistaragráðu í fjármálum frá Háskóla Íslands og bakkalárgráðu í iðnaðartæknifræði á markaðssviði frá Háskólanum í Reykjavík.