Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir hefur verið ráðin nýr framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands og mun hún hefja störf þann 1. maí.  Þetta kemur fram í frétt á vef ASÍ. Guðrún Ágústa er með BA gráðu bókmennta- og fjölmiðlafræði. Hún var kennari við Flensborgarskóla í fjölda ára auk þess að sitja í bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir VG frá 2006.

Guðrún Ágústa varð bæjarstjóri Hafnarfjarðar í júní 2012 og gegndi því embætti til júní 2014. Hún hefur verið verkefnisstjóri stefnumótunar hjá Strætó bs. síðan í október 2014. Guðrún Ágústa hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum í stjórnum og ráðum á vegum Hafnarfjarðarbæjar. Hún lætur af öllum embættum á hinum pólitíska vettvangi áður en hún kemur til starfa hjá ASÍ.