Stefán Sveinbjörnsson
Stefán Sveinbjörnsson
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Stefán Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn til starfa sem framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Háskólans á Bifröst.  Stefán hefur lokið Bsc prófi í viðskiptafræði og viðskiptalögfræði frá Háskólanum á Biföst og er að ljúka meistaranámi í lögfræði við Háskólann í Reykjavík. Stefán hefur fjölþætta reynslu á sviði fjármálastarfsemi. Hann var forstöðumaður fyrirtækjasviðs Sparisjóðs Mýrasýslu um árabil en hefur einnig starfað hjá VR og Íslenska Álfélaginu hf.  Þá hefur hann verið stundakennari í stærðfræði við Háskólanum á Bifröst.  Stefán er giftur Geirlaugu Jóhannsdóttur og eiga þau þrjú börn.