Snædís Ögn Flosadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Eftirlaunasjóðs félags íslenskra atvinnuflugmanna, EFÍA.

Fram kemur í tilkynningu að Snædís hefur starfað hjá Arion banka og forverum hans frá árinu 2006 og á eignastýringarsviði Arion banka frá árinu 2008, lengst af sem gæða- og verkefnastjóri. Nú síðast starfaði Snædís sem sérfræðingur í eignastýringu fagfjárfesta. Í störfum sínum hefur Snædís öðlast víðtæka reynslu af rekstri og stýringu lífeyrissjóða.

Snædís er með B.Sc gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfamiðlun. Snædís er jafnframt að leggja lokahönd á rannsóknarverkefni til meistaraprófs í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands en verkefni hennar fjallar um áhættustýringu í rekstri lífeyrissjóða. Maki Snædísar er Jökull Ingvi Þórðarson og eiga þau þrjú börn.

Eftirlaunasjóður félags íslenskra atvinnuflugmanna, EFÍA, var stofnaður árið 1974 og var reistur á grunni Lífeyrissjóðs FÍA. EFÍA er sjálfstæður sjóður en Arion banki annast rekstur og eignastýringu lífeyrissjóðsins á grundvelli rekstrarsamnings.