Ingi Jóhannes Erlingsson tók í dag tímabundið við sem framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitu Reykjavíkur (OR). Ingi Jóhannes var forstöðumaður fjár- og áhættustýringar hjá OR og tekur hann við af Önnu Skúladóttur. Gengið frá samkomulagi um starfslok hennar í dag.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitunni.

„Ingi Jóhannes er með meistaragráðu í alþjóðaviðskiptum (MIBS) frá Háskólanum í Suður Karólínu í Bandaríkjunum og viðskiptafræðingur, cand. oecon. af fjármála og reikningshaldssviði, frá Háskóla Íslands.

Helgi Þór Ingason forstjóri segir að þau verkefni, sem eru mest aðkallandi hjá fyrirtækinu nú um mundir, séu tengd fjármögnun þess og hann vilji stilla upp breyttu liði. Á vegum hans er nú starfandi samráðshópur með eigendum OR um fjármögnun fyrirtækisins og verkefna þess og hefur Ingi Jóhannes starfað þétt með þeim hópi. Helgi Þór kynnti þessa breytingu á stjórnendateyminu fyrir stjórn OR á fundi í dag.

Ingi Jóhannes hefur undafarin átta ár starfað í fjármálum OR og síðustu fimm árin sem yfirmaður fjár- og áhættustýringar.  Áður starfaði Ingi Jóhannes hjá Íslandsbanka og Flugleiðum við fjárstýringu og hjá Handsali við verðbréfamiðlun og ráðgjöf.

Hann er 44 ára, kvæntur Soffíu Halldórsdóttur innkaupafulltrúa og eiga þau tvær dætur, Selmu og Maríu.

Helgi Þór þakkar Önnu fyrir störf hennar í þágu OR. Hún hefur verið fjármálastjóri OR frá 2006. Greiðslur til hennar verða í samræmi við ákvæði í ráðningarsamningi, þ.e. launagreiðslur í níu mánuði.“