Stjórn Golfsambands Íslands hefur ráðið Brynjar Eldon Geirsson í starf framkvæmdastjóra félagsins.

Brynjar er 38 ára gamall og hefur starfað innan golfhreyfingarinnar frá árinu 2000, bæði á Íslandi og í Þýskalandi. Brynjar tók við starfi íþróttastjóra hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar eftir að hafa lokið PGA golfkennaranámi í Þýskalandi. Hann var ráðinn íþróttastjóri hjá Golfklúbbi Reykjaviku og var um tíma aðstoðarlandliðsþjálfari hjá GSÍ. Undanfarin tvö ár hefur hann starfað sem íþróttastjóri Märkischer Golfclub Potsdam í Berlín.

Haukur Örn Birgisson, forseti GSÍ segir um ráðninguna:

„Það er virkilega ánægjulegt að hafa fengið Brynjar til liðs við golfsambandið. Hann býr yfir mikilli þekkingu á golfíþróttinni og verður öflugur liðsmaður. Golfíþróttin hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum og það verður spennandi að vinna með Brynjari að áframhaldandi sókn íþróttarinnar.“

Starfið var auglýst laust fyrir áramót og tæplega 50 umsækjendur sóttust eftir starfinu. Ráðninga- og ráðgjafafyrirtækið Hagvangur var golfsambandinu innan handar í ráðningarferlinu.