Halldór Kristinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslenska lífeyrissjóðsins í stað Tryggva Guðbrandssonar sem óskað hefur eftir því að láta af störfum. Halldór tekur við starfinu 1. desember næstkomandi.

Í tilkynningu frá Landsbankanum kemur fram að Halldór hafi áralanga reynslu af störfum á sviði fjármála, sér í lagi eignastýringu og rekstri lífeyrissjóða. Halldór hefur síðustu þrjú árin starfað sem framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs Tannlækna, Kjalar lífeyrissjóðs og Eftirlaunasjóðs FIA.

Halldór er sjávarútvegsfræðingur (BSc) frá HA, með próf í alþjóðaviðskiptum frá North Park University, Chicago og próf í verðbréfamiðlun.