Óskar Sveinn Friðriksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu- og þjónustufyrirtækisins KAPP ehf.

KAPP selur og þjónustar kæli, frysti- og vinnslubúnað ásamt því að framleiða og smíða ryðfríar vörur fyrir matvælaiðnaðinn. Fyrirtækið framleiðir m.a. OPTIM-ICE ísþykknivélar sem þykja með bestu kæliaðferðum sem fyrirfinnast í dag og eru vinsælar í fiskiskipum og fiskvinnslum. Ísþykknivélarnar hafa einstaklega hraða kælingu og eiginleika sem fara mjög vel með hráefnið. Þá selur KAPP og þjónustar einnig Carrier kæli og frystivélar á bíla og vörukassa ásamt því að vera umboðsaðili Schmitz Cargobull flutningavagna hér á landi.

,,Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við spennandi starf hjá metnaðarfullu fyrirtæki. KAPP hefur styrkt stöðu sína á samkeppnismiklum markaði undanfarin ár. Það eru spennandi tímar framundan og mikið af tækifærum í þessum geira," segir Óskar.

Hann starfaði áður sem sem forstöðumaður alþjóðasviðs Eimskips  og stýrði kæli og frystiflutningsmiðlun félagsins síðastliðin 10 ár. Hann var á þeim tíma með aðsetur í Hollandi. Óskar hefur lengst af síns starfsferils unnið fyrir Eimskip og hefur starfað fyrir félagið í Hollandi, Bandaríkjunum og Kanada. Hann starfaði einnig hjá Sölku fiskimiðlun í 5 ár. Óskar er menntaður sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum í Tromso í Noregi.

Freyr Friðriksson, eigandi KAPP, sem verið hefur framkvæmdastjóri fyrirtækisins frá stofnun þess, verður nú stjórnarformaður fyrirtækisins. Freyr mun samhliða því sinna öðrum verkefnum fyrir fyrirtækið.

KAPP er með höfuðstöðvar að Miðhrauni 2 í Garðabæ. Starfsmenn fyrirtækisins eru um 43 talsins.