Eric Figueras hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Tæknisviðs Símans. Eric hefur starfað við fjarskipti og upplýsingatækni undanfarin 20 ár, í Frakklandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum auk Íslands. Hann starfaði hjá Símanum á árunum 1998-2004.

Eric hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri fjarskiptafyrirtækisins Amivox sem þjónustar yfir 40 þúsund viðskiptavini um allan heim en hann er jafnframt einn af stofnendum fyrirtækisins. Hann var framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar TM Software frá 2004-2007 og forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Símanum frá 1998-2004. Á árunum 1996-1998 var hann vörustjóri hjá Philips í Frakklandi. Frá 1991-1996 starfaði hann hjá Siemens í Þýskalandi og Bandaríkjunum.

Eric er með MSc gráðu í verkfræði frá háskólanum “Universidad Politécnica de Catalunya“ (UPC) í Barcelona með fjarskipti sem aðalgrein. Hann er jafnframt með MBA gráðu frá IMD háskólanum í Lausanne í Sviss.