Valdemar Johnsen, aðallögfræðingur Sjóvár, tekið við sem framkvæmdastjóri vátryggingasviðs, sem er nýtt svið hjá Sjóvá. Innan vátryggingasviðs verða viðskiptaþróun, endurtryggingar og stofnstýringar auk lögfræðiráðgjafar, en Valdemar mun sem fyrr gegna starfi aðallögfræðings hjá félaginu.

Valdemar hefur langa reynslu af störfum innan tryggingageirans, en hann gegndi um níu ára skeið starfi framkvæmdastjóra vátryggingasviðs og viðskiptaþróunar hjá Íslandstryggingu hf., síðar Verði tryggingum hf., áður en hann réðst á síðasta ári til starfa sem aðallögræðingur Sjóvár.

Nýlega var tilkynnt um ráðningu Elínar Þórunnar Eiríksdóttur sem framkvæmdastjóri sölu- og ráðgjafarsviðs.