Björg Eva Erlendsdóttir, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs frá 1. janúar. 

Í tilkynningu frá flokknum segir að stjórn hreyfingarinnar hafi samþykkt að bjóða henni hálfa stöðu í byrjun en Björg Eva hefur stýrt rekstri og framkvæmd samstarfs flokkahóps Vinstri grænna í Norðurlandaráði og formannasamstarfi sömu flokka undanfarin sex ár. Hún mun sinna því starfi áfram samhliða störfum fyrir Vg til að byrja með.

Björg hefur lokið háskólaprófi í íslensku, norsku og blaðamennsku og stefnir að útskrift sem meistari í Norðurlandafræðum frá Háskóla Íslands. Björg hefur lengst af unnið hjá Ríkisútvarpinu og hún hefur setið í stjórn þess síðustu ár.