Henrik R. Møller hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Applicon A/S í Danmörku, félags í eigu Nýherja.

Þetta kemur fram í tilkynningu. „Henrik R. Møller hefur starfað hjá Applicon í Danmörku undanfarin tvö ár. Hann starfaði áður hjá alþjóðlega ráðgjafafyrirtækinu Capgemini í fimm ár, þar af sem framkvæmdastjóri rekstrar hjá Capgemini í Danmörku. Henrik er með MBA frá Scandinavian International Management Institute og Cand. Scient í tölvunarfræði frá Københavns Universitet. Hann tekur við af Martin Nørballe, sem hafði starfað sem framkvæmdastjóri Applicon A/S frá 2005. Martin Nørballe mun áfram sinna þróunarverkefnum fyrir Nýherja hf. sem er móðurfélag Dansupport A/S,“ segir í tilkynningunni.