Hinn 1. mars sl. tók Christophe Piganiol til starfa sem nýr framkvæmdastjóri hjá DHL á Íslandi.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá DHL á Íslandi en Christophe tekur við starfinu af Shad Hallam sem tekur við nýju starfi hjá DHL í Svíþjóð.

Christophe Piganiol fæddist árið 1968 í bænum Pau í Suður-Frakklandi. Hann er með meistaragráður í flutningafræðum, viðskiptum og tölvunarfræði.

Christophe hefur mikla reynslu og þekkingu úr flutningaheiminum en hann starfaði áður hjá fyrirtækinu Lexmark í Frakklandi, Bandaríkjunum, Singapúr og Hong Kong. Undanfarin þrjú ár hefur hann starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri DHL á Filippseyjum.