Helga Sigríður Böðvarsdóttir hefur hafið störf sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandspósts.

Helga Sigríður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands að mennt og er löggiltur endurskoðandi. Hún hóf störf hjá Íslandspósti árið 2005 við ýmiss verkefni á sviði reikningshalds félagsins. Áður en hún kom til starfa hjá Íslandspósti starfaði hún hjá KPMG á árunum 1996 til 2005 í Reykjavík, í Fjarðabyggð og á Egilsstöðum.

Hún hefur einning starfað hjá Ferðamiðstöð Austurlands í Reykjavík árin 1995 til 1996 og hjá skattrannsóknarstjóra árin 1993 til 1995.