Roy Mercer hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri AEW Delford Systems, dótturfyrirtækis Marel Food Systems í Bretlandi, frá og með 1. febrúar n.k.

Hann tekur við að Ásgeiri Ásgeirssyni sem mun nú einbeita sér að fullu að stöðu sinni sem framkvæmdastjóri vöruþróunar, sem hann hefur gegnt samhliða starfi sínu hjá AEW Delford.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Marel.

Þar kemur fram að Roy Mercer hefur starfað sem stjórnunarráðgjafi hjá Marel Food Systems síðan í ársbyrjun 2008. Þar áður stýrði hann skrifstofu Scanvaegt í Bretlandi en þangað réðst hann til starfa árið 1988.