Atli Georg Árnason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum.

Atli lauk MBA námi frá Robert Gordon University í Skotlandi, með áherslu á breytinga- og verkefnastjónun.

Samhliða náminu í Skotlandi stofnaði hann flugfélagið City Star Airlines og gegndi þar stjórnarformennsku og var forstjóri eignarhaldsfélagsins.

Þetta kemur fram á vef ráðningarþjónustunnar Hagvangs.