Dómsmálaráðherra hefur skipað Þórdísi Ingadóttur, dósent við Háskólann í Reykjavík, til setu í dómstólaráði til fimm ára, frá 1. júlí 2009 til og með 30. júní 2014. Jafnframt var Hrefna Friðriksdóttir, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, skipuð varamaður Þórdísar.