Í dag tók til starfa nýr banki í eigu ríkissjóðs sem tekur við hluta af starfsemi Glitnis banka hf.

Bankastjóri Nýja Glitnis er Birna Einarsdóttir en hún hóf störf hjá Glitni og forverum hans, Iðnaðarbanka og Íslandsbanka árið 1987, nú síðast sem framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá hinum nýja banka.

Þar kemur fram að á stjórnarfundi FME þann 14. október var tekin ákvörðun um að Nýi Glitnir hf. tæki yfir hluta af eignum, réttindum og skyldum Glitnis banka hf. og heyrir innlendi hluti af starfsemi bankans frá þeim tíma því undir nýtt fyrirtæki og nýja stjórn.

„Um er að ræða rekstur allra útibúa á landinu, útlánastarfsemi og aðra hefðbundna bankastarfsemi. Með þessu hefur alþjóðleg starfsemi bankans verið skilin frá innlendu starfseminni,“ segir í tilkynningunni.

Viðskipti og þjónusta með hefðbundnum hætti

Í tilkynningunni kemur fram að engin breyting verður á hefðbundnum viðskiptum milli bankans og viðskiptavina hans. Útibú bankans munu starfa óbreytt og engin breyting verður á opnunartíma þeirra.

Þjónusta við einstaklinga og fyrirtæki verður sú sama og notkun greiðslukorta verður með hefðbundnum hætti. Sömu inn- og útlánsreikningar verða í hinum nýja banka eins og áður var. Netbanki og hraðbankar starfa í óbreyttri mynd.

Í ákvörðuninni felst m.a. að nýi bankinn yfirtekur allar innstæðuskuldbindingar í bankanum á Íslandi og sömuleiðis stærstan hluta eigna bankans sem tengjast íslenskri starfsemi s.s. lán og aðrar kröfur.

Nýr bankastjóri, Birna Einarsdóttir

Birna Einarsdóttir hóf störf hjá Glitni og forverum hans árið 1987 (þá Iðnaðarbankanum) og hefur m.a. starfað sem útibússtjóri og markaðsstjóri Íslandsbanka, forvera Glitnis.

Í tilkynningunni kemur fram að eftir nokkurt hlé réð Birna sig aftur til bankans haustið 2004 þá framkvæmdastjóri sölu og markaðsmála.

Hún hefur verið framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs Glitnis síðan í júní á síðasta ári.

Birna starfaði um sex ára skeið að markaðsmálum hjá Royal Bank of Scotland. Hún hefur jafnframt starfað sem markaðsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins - Stöðvar 2 og Íslenskra getrauna.

Birna er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Háskólanum í Edinborg.

Tímar breytinga og uppbyggingar framundan

„Síðustu vikur hafa verið erfiðar fyrir alla þá sem starfa í bankageiranum. Við horfum nú á eftir góðum vinum og félögum, segir  Birna Einarsdóttir, bankastjóri Nýja Glitnis í tilkynningunni.

„Það er að mínu mati forgangsatriði fyrir samfélagið að kraftar þessa fólks verði virkjaðir á öðrum vettvangi. Næstu daga munum við hjá Glitni leggja megináherslu á að hugsa um viðskiptavini og fólkið okkar. Það er verkefni okkar að byggja aftur upp öfluga bankastarfsemi á Íslandi. Starfsfólk Glitnis hefur á þessu ári þurft að takast á við erfið verkefni og leyst þau af hendi afar vel. Það býr ótrúlegur kraftur í  fólkinu okkar.

Framundan eru tímar breytinga og uppbyggingar í íslensku samfélagi.Það þurfa allir að leggjast á eitt til þess að tryggja að hjól atvinnulífsins haldi áfram að snúast. Við hjá Glitni ætlum að axla okkar ábyrgð í því sambandi og erum reiðubúin til þess að fara í þá vinnu með yfirvöldum og hagsmunaaðilum. Það þurfa allir að sýna samstöðu, þannig komust við öll í gegnum þetta.

Ég starfaði náið með Lárusi Welding og vil nota tækifærið og þakka honum fyrir hans góða starf fyrir Glitni. Þegar hann kom inní í bankann um mitt síðasta ár blöstu við mörg erfið verkefni sem hann leysti vel af hendi. Ég þakka honum samstarfið og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.

Ég hlakka til að takast á við þetta verkefni og er bjartsýn á að með samstilltu átaki náum við öll að snúa  þeim áskorunum sem við stöndum nú frammi fyrir í tækifæri.”