Á annað þúsund erlendir fréttamenn eru væntanlegir hér til lands á næstunni þegar nýr Volkswagen Golf  verður heimsfrumsýndur hér. Í fréttatilkynningu frá Heklu kemur fram að Ísland hafu verið valið til heimsfrumsýningar vegna einstakrar náttúrufegurðar landsins.

Um er að ræða stærstu bílakynningu sem hefur verið haldin hér á landi. Kynningarátak vegna bílsins mun standa yfir í þrjár vikur.

„Það er okkur hjá HEKLU, umboðsaðilum Volkswagen á Íslandi, mikið ánægjuefni að stjórnendur Volkswagen skuli vilja heimsfrumsýna nýja kynslóð VW Golf hér á landi,“ segir Sverrir Viðar Hauksson, framkvæmdastjóri bílasviðs HEKLU í fréttatilkynningu.