Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra, Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, og fyrirtækið Eff2 Technologies undirrituðu í vikunni tímabundinn verksamning um þróun, uppsetningu og afnot á hugbúnaðarkerfi fyrir embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu sem gerir lögreglunni kleift að bera kennsl á barnaklám og annað ólögmætt efni í tölvum sem hafa verið haldlagðar.

Með þessu samstarfi lögreglunnar og Eff2 Technologies verður Ísland fyrsta landið í heiminum sem notar slíka lausn í baráttunni gegn barnaklámi og öðru ólögmætu efni.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Tæknin sem gerir þetta mögulegt ber heitið Videntifier Forensic og verður fullþróuð í nánu samstarfi við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu.

Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að Stefán Eiríksson lögreglustjóri segir að ávinningurinn sé bæði vinnusparnaður hjá lögreglunni og aukin skilvirkni við rannsóknir barnaklámsmála. Þessi tækni bjóði auk þess upp á aukna möguleika til að rannsaka uppruna og dreifingu barnakláms og ná þannig frekar til þeirra sem framleiða þetta efni og dreifa í stórum stíl. Slíkt yrði þá unnið í náinni samvinnu við lögregluyfirvöld í öðrum löndum.

Eff2 Technologies er sprotafyrirtæki úr Háskólanum í Reykjavík, stofnað síðla árs 2007. Það hefur unnið til verðlauna fyrir Videntifier-verkefnið bæði hér heima og á erlendri grundu.