Veitingastaðakeðjan Joe & the juice opnaði sinn fjórða stað á landinu í dag. Staðurinn er staðsettur er á milli innritunar- og komusalar í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Samkvæmt upplýsingum frá fyrirtækinu er þessi staður sá fyrri af tveimur en annar staður mun opna í nýju verslunarsvæði flugstöðvarinnar í mars.

Joe and the Juice á rætur sínar að rekja til Kaupmannahafnar þar sem fyrsti staðurinn var opnaður árið 2002. Nú eru rúmlega 50 staðir í rekstri sem starfræktir eru í fimm löndum.

Staðurinn opnaði klukkan hálfsjö í morgun og fengu ferðalangar í tilefni dagsins djús og kaffi.