Nýr kjarasamningur ASÍ var samþykktur í sameiginlegri allsherjaratkvæðagreiðslu félagsmanna aðildarsamtaka ASÍ, en kosningu lauk á hádegi í dag.

Alls greiddu 10,653 atkvæði, en það jafngildir 14,08% kosningaþátttöku. Já sögðu 91,28%, nei sögðu 7,81% og 0,91% skiluðu auðu.