Nýr kjarasamningur til fimm var undirritaður hjá Alcoa Fjarðaáli 17. júlí ára milli AFLs starfsgreinafélags, Rafiðnaðarsambands Íslands og Alcoa Fjarðaáls. Samningurinn gildir gildir til fimm ára, frá 1. mars 2015 að telja.

Fram kemur í tilkynningu að helstu breytingar í nýjum samningi felast í breyttu vinnutímafyrirkomulagi. Þannig mun t.d. vinnustundum vaktavinnufólks á mánuði fækka, tekinn verður upp fæðingarstyrkur til starfsmanna í fæðingar- og foreldraorlofi og grunnlaun munu hækka. Einnig er í samningnum kveðið á um viðbætur og hækkanir á launatöflum, árlega hækkun desember- og orlofsuppbóta á samningstímanum og samið er um eingreiðslu til starfsmanna.

Magnús Þór Ásmundsson forstjóri Alcoa Fjarðaáls kveðst ánægður með að búið sé að landa nýjum kjarasamningi og telur að hann feli í sér mikla kjarabót fyrir starfsfólk Fjarðaáls. Hann segir að þótt samningaferlið hafi verið langt hafi það engu að síður gengið vel og gott samstarf hafi verið milli aðila.

Formleg kynning og atkvæðagreiðsla um samninginn fer fram í Fjarðaáli eftir verslunarmannahelgi.