Filippus VI hefur tekið við embætti konungs á Spáni. Hann tók formlega við embættinu á miðnætti en Jóhann Karl faðir hans afsalaði sér formlega krúnunni á miðvikudaginn. Athöfnin var fremur látlaus í ljósi þess hve margir Spánverjar eiga um sárt að binda.

Filippus sem er 46 ára sagðist vera vongóður um bjarta framtíð á Spáni.

Hann er giftur Letizia Ortiz Rocasolano fyrum blaðamanni og eiga þau dæturnar Leonor sem er 8 ára og Infanta Sofía sem er 7 ára.