Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur undirritað og samþykkt reglugerð sem heimilar Íbúðalánasjóði lánveitingar til fjármálafyrirtækja í þeim tilgangi að endurfjármagna tímabundið íbúðalán sem þessi fyrirtæki hafa veitt gegn veði í íbúðarhúsnæði. Allt að 30 milljörðum króna verður varið til lánveitinga í þessum lánaflokki í formi íbúðabréfa sem eingöngu verða notuð í veðlánaviðskiptum við Seðlabanka Íslands.

Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að skilyrði fyrir lánveitingu sé að hún sé til þess fallin að tryggja öryggi og framboð lána á íbúðalánamarkaði og eðlilega verðmyndun á íbúðamarkaði.

Setning reglugerðarinnar er í samræmi við yfirlýsingu ríkistjórnarinnar frá 19. júní sl. þar sem kynntar voru aðgerðir á fasteigna- og fjármálamarkaði.

Íbúðalánasjóður fái heimild til að kaupa ný íbúðalán

Í fréttatilkynningunni segir einnig að félags- og tryggingamálaráðherra muni jafnframt leggja fram á Alþingi í byrjun september nk. frumvarp þar sem lagt verður til að Íbúðalánasjóði verði veitt heimild til að fjármagna og kaupa ný íbúðalán af fjármálafyrirtækjum. „Þetta var ákveðið eftir ítarlega skoðun félags- og tryggingamálaráðuneytisins og Íbúðalánasjóðs að höfðu samráði við Fjármálaeftirlitið og Seðlabanka Íslands. Verði frumvarpið að lögum er áætlað að verja til þessa allt að 30 milljörðum króna á þessu og næsta ári.“

Tekið er fram í tilkynningunni að framangreindar lagabreytingar sem fyrirhugaðar eru í september eru óháðar heildarendurskoðun laga um húsnæðismál sem jafnframt er fyrirhuguð á komandi löggjafarþingi sem hefst í október.