Garðabær hefur ráðið Ingu Þóru Þórisdóttur í starf mannauðsstjóra. Inga Þóra er með B.Ed. próf frá Kennaraháskóla Íslands og MA gráðu í mannauðsstjórnun frá Háskóla Íslands. Þetta kemur fram í frétt á vef Garðabæjar .

Inga Þóra hefur frá árinu 2008 starfað sem sviðsstjóri starfsmanna- og gæðasviðs Fiskistofu. Vilhjálmur Kári Haraldsson, sem hefur sinnt starfinu undanfarin ár, snýr sér að nýjum vettvangi.