Forystumenn Sjálfstæðisflokksins stefna að því að ákveða á þingflokksfundi í dag hver verður arftaki Hönnu Birnu Kristjánsdóttur á stól innanríkisráðherra. Morgunblaðið kveðst hafa heimildir fyrir þessu.

Þar kemur fram að mestar líkur hafi verið taldar á því í gærkvöldi að Bjarni Benediktsson gerði tillögu um að Einar Kristinn Guðfinnsson, forseti Alþingis, tæki við embætti innanríkisráðherra. Hins vegar sé óljóst um afstöðu Einars. Einnig séu Birgir Ármannsson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir orðuð við embættið.