Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra boðar að nýr ráðherra muni bætast við ríkisstjórnina á næstunni. Þetta sagði hann í samtali við Sigujón M. Egilsson í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Hann mun koma úr röðum framsóknarmanna.

„Það kemur að því fljótlega. Það er ekki búð að tímasetja það nákvæmlega en það veltur á því hvernig vinnu vindur fram við að endurskipuleggja verkaskiptingu ráðuneyta,“ segir Sigmundur Davíð.

Hann segir alveg ljóst að það verði til nýtt ráðuneyti sem muni meðal annars fara með umhverfismál.