Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, hefur skipað Sturlu Sigurjónsson, sendiherra, í embætti ráðuneytisstjóra í utanríkisráðuneytinu og tekur hann við starfinu á morgun, 1. september. Stefán Haukur Jóhannesson, sem hefur verið ráðuneytisstjóri frá árinu 2014 fer til starfa erlendis en mun fram að brottför stýra verkefnum sem tengjast útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu (Brexit). Gunnar Snorri Gunnarsson, sendiherra, sem hefur annast þau verkefni fer til starfa erlendis um áramót. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Sturla Sigurjónsson á að baki 30 ára feril í utanríkisþjónustunni og gegndi síðast stöðu sendiherra Íslands í Kanada. Þar áður var hann sendiherra í Danmörku, ráðgjafi forsætisráðherra um utanríkismál og sendiherra á Indlandi. Í starfi sínu hefur hann gegnt ýmsum ábyrgðarstöðum og m.a. verið skrifstofustjóri alþjóðaskrifstofu og áður varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.