Jófríður Ósk Hilmarsdóttir
Jófríður Ósk Hilmarsdóttir

Katrín B. Sverrisdóttir hættir sem regluvörður hjá Reginn hf í ljósi meiri umsvifa félagsins. Katrín sem einnig er framkvæmdastjóri félaganna Reginn atvinnuhúsnæði ehf., Knatthöllin ehf. og Kvikmyndahöllin ehf. mun eftir sem áður stýra þessum dótturfélögum Regins. Við starfi regluvarðar Regins tekur Jófríður Ósk Hilmarsdóttir. Jófríður mun jafnframt verða fjárfestatengill félagsins.

Jófríður er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði og með löggildingu í verðbréfamiðlun. Hún starfaði sem sérfræðingur í regluvörslu Arion banka hf. frá 2009-2014. Hún starfaði einnig hjá Spron og Spron verðbréfum frá 2005-2009 meðal annars sem sérfræðingur í eignastýringu.