Heiðdís Lilja Magnúsdóttir hefur tekið til starfa sem ritstjóri á tímaritinu Nýju lífi, segir í fréttatilkynningu.

Heiðdís er píanókennari að mennt en hefur starfað á tímaritinu síðastliðin fimm ár, en tímaritið kom fyrst út árið 1978.

?Markmið mitt er að gera gott blað enn betra. Nýtt Líf á ákaflega tryggan og góðan lesendahóp en samt sem áður eru sóknarfæri á þessum markaði, að ná inn fleiri lesendum," segir Heiðdís Lilja.

?Nýtt Líf er blað sem mun fylgjast með tískunni, innihalda áhugaverðar greinar, fjalla um kraftmiklar íslenskar konur sem og margt fleira. Þá er einnig hugmyndin að byggja upp sterkara samband við lesendur blaðsins og auka gagnvirkni þess,"segir hún.