Fulltrúar Flugfreyjufélags Íslands (FFÍ) og Icelandair undirrituðu nýjan kjarasamning aðfararnótt sunnudags. Samningurinn, sem gildir til 30. september 2025, er í meginatriðum byggður á samningi þeim sem aðilar undirrituðu 25. júní síðastliðinn, samkvæmt fréttatilkynningu Icelandair.

Fram kemur að samningurinn feli í sér aukna hagræðingu frá þeim samning, án þess að skerða kjör flugfreyja og flugþjóna. Samningurinn fer nú í atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum FFÍ sem lýkur 27. júlí.

Í framhaldi á undirritun samnings óskar Icelandair eftir vinnuframlagi frá flugfreyjum og flugþjónum félagsins og því munu flugmenn ekki sinna störfum öryggisliða um borð.

„Það er mikill léttir fyrir alla að samningar hafi náðst og ég bind miklar vonir við að félagsmenn FFÍ samþykki samninginn. Með þessum samningi næst sú hagræðing sem við teljum nauðsynlega. Undanfarnir dagar hafa reynt verulega á og ég er afskaplega sáttur að við séum að ná lendingu. Þetta er gríðarlega mikilvægt skref í því stóra verkefni sem við stöndum frammi fyrir,” er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair Group.