Tíu þúsund króna seðillinn sem verður kynntur í dag er fyrsti seðillinn sem kemur út allt frá árinu 1995, eða í átján ár.
Síðast þegar gefinn var út nýr seðill var það 2000 króna seðill með mynd af Kjarval. Þá eru liðin 27 ár frá því að fimm þúsund króna seðillinn kom út með mynd af Ragnheiði Jónsdóttur biskupsfrú á Hólum. Í nóvember 2003 setti Seðlabankinn í umferð nýja gerð 5000 króna seðils.
Elsti seðillinn er aftur á móti 500 króna seðillinn en hann kom fyrst út árið 1981.