Ekki er hægt að útiloka að tilkoma nýs manns til starfa í brú Seðlabankans eigi einhvern þátt í auknum umsvifum hans á gjaldeyrismarkaði nú.

Þetta kemur fram í Morgunkorni Íslandsbanka í morgun en eins og greint var frá í morgun hér á vb.is hefur krónan styrkst nokkuð eftir mikil inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði. Frá opnun markaða í gær hefur krónan styrkst um þrjú prósentustig og veikingin undanfarinna vikna að mestu gengin til baka.

„Hinn nýi Seðlabankastjóri, Már Guðmundsson, viðraði nýverið í fjölmiðlum þá skoðun sína að virkari þátttaka Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði undanfarin ár hefði verið heppileg, og að skynsamlegt gæti verið fyrir bankann að beita gjaldeyrisforðanum sem eins konar sveiflujafnara fyrir gengi krónu með umfangsmiklum gjaldeyriskaupum á hágengistímum og tilsvarandi sölu þegar gengið stæði veikt,“ segir í Morgunkorni.

„Már var einnig aðalhagfræðingur bankans þegar krónunni var fleytt á vordögum árið 2001, en í kjölfarið beitti Seðlabankinn inngripum í töluverðum mæli til að stemma stigu gegn hraðri veikingu krónu það ár.“

Þá kemur einnig fram í Morgunkorni að aflandsgengi evru gagnvart krónu hefur þróast með talsvert öðrum hætti undanfarnar vikur en raunin hefur verið hér innanlands. Þannig lækkaði gengi evru á aflandsmarkaði eftir miðjan ágústmánuð úr 220 kr. í 212,5 krónur á sama tíma og gengið á millibankamarkaði hækkaði úr 181 kr. í 184 kr., ef marka má miðlunarkerfi Reuters.