Jóhann Másson hefur verið ráðinn sem sölu- og markaðsstjóra hjá Þekkingu hf., en hann tók við starfinu í byrjun febrúar.

Jóhann var áður framkvæmdastjóri sölusvið Egilsson / A4 á árinum 2013 til 2015. Jóhann starfaði hjá hjá Vodafone frá 2006-2013 og gengdi meðal annars stöðu framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs og þjónustusviðs. Frá 1999-2005 starfaði Jóhann hjá Símanum, lengst af sem  forstöðumaður fyrirtækjasviðs.

Jóhann er menntaður í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og hann er formaður Júdósambands Íslands.