Eigendur Staðarskála í Hrútafirði hafa hafið hönnun á nýjum skála sem verður reistur á nýjum stað við þjóðbraut og taki við af þeim fyrri.

Þetta kemur í kjölfar þess að undirbúningur er hafinn að styttingu hringvegarins fyrir botni Hrútafjarðar og er áætlað að þeirri framkvæmd ljúki árið 2008. Við breytinguna lendir Staðarskóli nokkru innan við vegtenginguna. Þetta kemur fram í Feyki.

Staðarskáli á sér mikla en þó ekki mjög langa sögu. Það voru bræðurnir á Stað, Magnús og Eiríkur Gíslasynir ásamt Báru Guðmundsdóttur, eiginkonu Magnúsar sem reistu eldri hluta skálans árið 1960, en það ár hætti Páll Sigurðsson veitingarekstri sínum í Fornahvammi og Norðurleiðarrúturnar fluttu viðskipti sín í Staðarskála. Árið 1971 var svo skálinn stækkaður og aukið við reksturinn. Árið 1994 var svo opnað gistihús í túninu á Stað en þar hafði áður verið rekstur svínabús. Þetta ár lést Magnús en þá hafði Vilborg dóttir þeirra hjóna sest þar að ásamt eiginmanni sínum Kristni Guðmundssyni og tekið við umsjón rekstursins.

Árið 2002 var svo enn aukið við reksturinn en þá tók fjölskyldan við veitingarekstrinum á Brú og starfsmannafjöldinn er kominn í 55-60 þegar annir eru mestar. Ársstörf eru um 30 og þar af um helmingur heimamenn úr sveitinni.